![](http://buseti.overcastcdn.com/images/14207.c0b53f66.fill-550x550-c100.jpg)
Rekstur Búseta byggir á traustum grunni og einkennist af nútímaáherslum í rekstri. Nýbyggingarverkefni Búseta vekja jafnan athygli fyrir hönnun, vandað efnisval og ekki síst áhugaverðar staðsetningar. Í rekstri félagsins er sífellt aukin áhersla á umhverfisvitund og sjálfbærni. Enda lætur áhugi félagsmanna ekki á sér standa þegar sala fer fram.