Traust félag sem byggir á kjarnahæfni starfsfólks og góðum stjórnarháttum
Búseti er húsnæðissamvinnufélag að norrænni fyrirmynd sem býður einstaklingum og fjölskyldum upp á íbúðir með áherslu á langtímahugsun og húsnæðisöryggi. Sjálfbærni er samofin menningu og starfsemi Búseta. Félagið eru í eigu allra félagsmanna og jafnan opið öllum óháð aldri og búsetu. Félagið á hátt í 1.100 íbúðir höfuðborgarsvæðinu og var í árslok með 98 íbúðir í byggingu. Innan samstæðu Búseta er að finna Leigufélag Búseta sem leggur áherslu á að hlúa vel að leigjendum.
Veruleg aukning var á sölu búseturétta og útleigu íbúða árið 2020. Að meðaltali skiptu 16 íbúðir um íbúa á mánuði.
Hjá Búseta starfar fimmtán manna samheldinn og skapandi hópur þar sem kynjaskipting er jöfn. Markmið Búseta er að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks Búseta gerir vinnustaðinn skemmtilegan og lagt er upp úr að hlúa vel að starfsfólki. Starfsfólk Búseta er í góðu samstarfi við allmarga trausta verktaka sem starfa í þágu félagsins.
Stjórn og framkvæmdastjóri Búseta leggja áherslu á góða stjórnarhætti en þannig er lagður grunnur að ábyrgri stjórnun og ákvarðanatöku. Starfsreglur stjórnar er að finna hér
Aðalstjórn
Jón Ögmundsson, formaður
Finnur Sigurðsson
Helga Egla Björnsdóttir
Jónína Lárusdóttir
Valur Þórarinsson
Varamenn stjórnar
Hildur Mósesdóttir
Gunnlaugur Magnússon
Endurskoðandi
Hólmgrímur Bjarnason, löggiltur endurskoðandi Deloitte ehf.