Uppgjör og lykiltölur
Rekstrarniðurstaða ársins endurspeglar styrk Búseta
Byggingarverkefni á vegum Búseta á síðustu árum hafa fært félaginu margvísleg verðmæti. Ekki síst með aukinni flóru fasteigna sem félagsmönnum standa til boða á áhugaverðum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Nýbyggingarverkefni Búseta hafa staðist áætlanir hvað varðar tíma og fjárhag og standast tímans tönn þegar kemur að hönnun og útfærslu.
Þegar á reynir, eins og þegar Covid-19 stuðlaði að tekjumissi margra, bauð Búseti sínum félagsmönnum upp á úrræði til að mæta þessum óvæntu aðstæðum. Með þessum hætti sýnir Búseti samfélagsábyrgð í verki og vinnur með búseturéttarhöfum að lausnum á óvæntri áskorun.
Árinu 2020 fór fram úttekt á starfsemi Búseta hvað varðar umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti (UFS) í samstarfi við Reitun. Niðurstaða skýrslunnar leiddi í ljós að Búseti fékk 74 stig í UFS mati Reitunar sem er vel fyrir ofan meðaltal í samanburði við aðra innlenda útgefendur skuldabréfa sem hafa farið í gegnum UFS greiningu hjá Reitun. Meðaltalið sýnir heildareinkunn upp á 63 stig af 100 stigum mögulegum, eða B3. Félagið er fyrir ofan meðaltal í öllum flokkum í samanburði við önnur innlend félög.
Sem fyrr er unnið af kostgæfni að stefnu og markmiðum félagsins um leið og varfærni er gætt. Hjá Búseta er auðlindum ráðstafað með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi um leið og lögð er áhersla á samlegðaráhrif við rekstur og byggingu fasteigna. Starfsemi og rekstur Búseta og Leigufélags Búseta þykir til fyrirmyndar og félögin meðal þeirra sem hlutu viðurkenningar frá CreditInfo og Viðskiptablaðinu á síðasta ári líkt og fyrri ár.
Eignir
Heildareignir Búseta aukast um 12% á milli ára og hafa tvöfaldast á síðastliðnum 5 árum.
Eignir og eigið fé
Eiginfjárhlutfall hefur aukist undanfarin ár og var 37,5% í árslok 2020 sem sýnir styrk samstæðunnar.
Rekstrarkostnaður
Þróun rekstrarkostnaðar samstæðu í samhengi við fjölgun eigna.
LYKILTÖLUR REKSTRAR | 2020 | 2019 |
---|---|---|
Rekstrartekjur | 2.023.968 | 1.855.983 |
Tekjur vegna sölu búseturétta | 663.787 | 297.506 |
Rekstrarkostnaður eigna | -516.037 | -490.132 |
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | -176.605 | -172.695 |
Rekstrarafkoma | 2.024.555 | 1.501.806 |
Matsbreyting | 2.991.956 | 1.922.813 |
Fjármagnsliðir | -1.557.264 | -1.288.464 |
Afkoma ársins | 2.757.578 | 1.612.235 |
LYKILTÖLUR EFNAHAGS | 2020 | 2019 |
---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 48.561.460 | 42.943.193 |
Nýbyggingar í vinnslu | 2.618.175 | 3.176.757 |
Handbært og bundið fé | 559.402 | 170.329 |
Heildareignir | 52.028.957 | 46.550.895 |
Eigið fé | 19.472.039 | 16.714.462 |
Skuldir við lánastofnanir | 26.042.915 | 23.864.065 |
Eiginfjárhlutfall | 37,4% | 35,9% |
Eignir samtals, breyting milli ára | 12% | 10% |
Veðhlutfall | 50% | 51% |